Nýtt Ilmvatn // CALVIN KLEIN WOMEN
//Færslan er ekki kostuð, en ilmvatnið var fengið að gjöf//
Ferskur kvenlegur Ilmur sem hefur verið ótrúlega vinsæll síðan hann kom í sölu, en þetta er nýjasti ilmurinn frá Calvin Klein! Persónulega finnst mér ilmvatnið mjög ferskt, smá blóma keimur & mjög kvenleg lykt!
Ég hef notað sama ilmvatn frá því ég var 15-16 ára þannig ég var mjög glöð að finna annan ilm sem ég fýla! Hef notað þennan nánast daglega síðan ég eignaðist hann.
Ps. Ekki skemmir það hversu ótrúlega fallegt ilmvatnsglasið er.
En Ilmvatnið færðu til dæmis í Snyrtivörudeildinni í Hagkaup!